06febrúar

uuuuuuuuu...?

Er í merkilega góðu skapi eftir 6. vaktina.
(sem hefur hingað til ekki gerst)

Gott að sjá að maður getur lært og skánað enn eitthvað á gamals aldri ;)

Langar að þakka Tinnu og Höllu alveg frá mínum innstu hjartarótum fyrir að hringja svona um miðjan dag í mig...

Þegar það er NÓTT hjá mér..

En ég er alveg kolómöguleg í að komast á fætur og jésús þá að ætla reyna vera fersk og skemmtileg í hitting þegar þegar þessar vaktir eru....
(voða takmörkuð ég veitTongue out)


Dreif mig með bílinn í skoðun og fékk auðvitað aftur endurskoðun...
Það á víst ekki að heyrast kraftpústhljóð þegar það er ekkert kraftpúst.
(voða smámunasamir)

Tannlæknirinn minn mun geta skellt sér til París í mánuð og gist á Hilton hóteli eftir þessar heimsóknir til hennar.

Veit ekki hvernig ég færi að þessu ef ég væri með einhvern rugl lánapakka hingað og þangað.

Það yrði einhvert aumingja bankaútibú með gölum hægfara og hræddum gjaldkerakellingum "heimsótt"..


Hlakka til vikufrísins sem fer að bresta á, en ég ætla mér auðvitað alltaf heila helv. helling í því.
(geri alltaf helling, ekki kanski allt sem var planaðSmile)








HressastaDísin..........(í augnablikinu allavega)..

06. febrúar 2009 klukkan 08:48
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
04febrúar

Nennigi gera nema sem minnst núna..

Sit hérna á vaktinni hálf úfin, grámygluleg og í 66° norður úlpunni sem Pétur gaf mér í afmælisgjöf..

(já það er kalt hjá mér)..

Virðist þó ennþá ná að drepa tíman þokkalega yfir nóttina og merkilegt nokk koma einhverju í verk sem er hálf ómögulegt þegar ég er á 9-17 vöktum..

Skelli mér með bílinn í skoðun á eftir eingöngu til þess að fá ENDURSKOÐUN á hann aftur!

Við Atli græjuðum diskana um daginn og þegar við vorum búin að setja Opel-undrið á lyftuna þá sáum við að pústið er alveg á síðasta séns.
Það hafði meira að segja tærst af stubburinn á púströrinu sem kemur aðeins útundan bílnum og við gátum ekki annað en hlegið Tongue out



Fór í klippingu og strípur og er ógisslega flott á mér hárið! ;)


Var með það á hreinu að fara í A.S.I fræðsluna á þrið og mið kl 15.30-17.30 en jésús minn, ég rumskaði ekki einu sinni þegar klukkan hringdi í gær!
Ætla samt að prófa aftur í dag, er ekki sátt við að missa af þessu!
(endilega ef þið nennið að prófa hringja í mig í dag 4/2 kl 14.00 ef þið munið eftir þessu með mér)

Svo er ég loksins orðin dugleg í ræktinni nema hvað ég hef ekkert farið eftir að ég fór á næturvaktirnar og býst ekki við því að fara fyrren í fyrsta lagi beint eftir síðustu vaktina.

Þannig að ef þig sjáið undirhöku næst þegar við hittumst, þá vitið þið hvers vegna hún kom!Wink 


Ég sem sagt hér með, eftir ég veit ekki hvað margar næturvakta hrinur og jafn margar tilraunir til þess að gera eitthvað aktíft með þeim viðurkenni mig GERSIGRAÐA...

Þær eru og verða einfaldlega Vinna-borða-sofa...


Ef Pétur væri ekki að græja kvöldmatinn, þá myndi ég sennilega lifa á kornflexi á þessum næturvöktum Embarassed... 


(ættuð bara sjá þvottahúsið! Segi bara eins og Eydna : bara reinlega missi tödjin þar!)

...hún sem sagt :Hreinlega missir tökin þar ;)










EllaDísin.......






 

04. febrúar 2009 klukkan 07:50
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
02febrúar

Þvílíkur dýrðar mánudagur ;)

Þær fljóta ágætlega í gegn núna þessar vaktir!

Ekki slæmt það! ;)


Er farin að skipuleggja helst óslitin lærdóm til apríl/maí..

(bjartsýn ha?)

Neh, held þess þurfi til þess að fá ásættanlega út úr þessu næsta prófi.

Er nýfarin að geta horft aftur á þessar bókadruslur aftur, en vá hvað þær fóru í frost við þessa vinnu óvissu sl. 3 mánuði.
Gat ekki einbeitt mér að neinu nema bara deginum í dag PUNKTUR!

Þannig ég er öll að lenda aftur sem betur fer ;)

Er enn þá með gamla góða sófann, en sófinn sem elskuleg móðir mín ætlaði mér fór annað, sem betur fer.

Við erum ekki alveg með sama smekk á húsgögnum, eiginlega bara alls ekki!Tongue out

Fékk dýraeftirlitið í heimsókn til mín á fimmtudaginn..
Ég bara var ekki heima til að taka á móti honum og Pétur ekki heldur, þannig að þeir fá símtal á eftir frá mér.

En elskulegur nágranni minn hringdi og tilkynnti eitthvað? Veit ekki hvað það gæti verið og einmitt þá verður forvitnilegt að heyra hvað kemur út úr þessu símtali á eftir.

Get ekki sagt að ég sé sátt við nágrannann! Líður hálfpartinn eins og dýraníðingi og einhverju vesenispakki!

En þessi nágranni hefur alveg gengið fram af mér núna og hélt ég að það væri ekki hægt að toppa það að hringja í lögregluna vegna þess að hún er ósátt við það að við notum vekjaraklukku!
(veit ekki með ykkur en ég myndi ekki halda vinnuni lengi ef ég hætti að nota vekjaraklukku!)

Jább, sumir eru alveg klárlega ekki hæfir í þessu samfélagi..

Ætla hendast í klippingu núna strax eftir vaktina og sjá hvort það komi eitthvað krassandi út úr því!Wink









EllaDísin............
02. febrúar 2009 klukkan 07:15
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
01febrúar

Næturvaktirnar góðu ;)

Þá er maður mættur aftur á kreik hérna á nóttinni.

Komin tímabundið aftur í hóp óreglupésa, næturvinnu fólks og annara dýra sem hafa sig eingöngu fram í skjóli myrkursCool...


Er búin að hugsa mikið þessa viku hversvegna sumir eru svona mikið hægari en aðrir?

Hef heyrt einstaklinga biðja um útskýringu á einhverju sem var verið að enda við að útskýra fyrir þeim einni sekúndu áður. NEMA þeir fleygja fram: Hvernig gerir maður það? á sekúndu tvö!...

Oooooooooooohhh!!!

 Finnst þetta bæði svo þreytandi og VANDRÆÐALEGT fyrir þessa aumingja einstaklinga!!!!

En já það eru ekki allir jafn fljótir..

...........hvað þá STÓRFLJÓTIRLaughingTongue out


1. nóttin búin af sjö og hún leið skratti hratt (ekki slæmt það)
ætla láta þessar næstu 6 þjóta framhjá líka ;)















NæturDrottningin......
01. febrúar 2009 klukkan 07:52
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
1 athugasemd
29janúar

Öpp-deit...

Hef ekki verið duglega að blogga..


.........SO WHAT Tongue out




Hundurinn stakk af í pissuleiðangri í fyrradag!

Sennilega að hefna sín eftir klukkutíma í búrinu?

Fannst eftir mikla leit og símtal til lögreglunnar (sem var mjög hjálpleg og virkilega annt um að púkinn kæmist heill heim)

Hann semsagt skellti sér á rúntinn með nágranna sem var keyrandi í götunni, granninn opnaði hurðina og Engill bara Jíííííhaaa bílferð! Ég er sko til!

Munum hér eftir kalla hann: The Fugitive!!!


Er farin að skella mér 4x eða oftar í viku í ræktina og sjitt hvað mér finnst þetta ganga hægt!

Hélt ég yrði eins og þesar í ANTM á einni nóttu, en það er víst einhver misskilningur...

Mamma er búin að reyna selja mér allt mögulegt síðan hún byrjaði í Húsgagnahöllinni með engum árangri þótt hún sé söluhæst mánuð eftir mánuð!

Nema kanski núna...

Hringdi í Pétur og náði honum á meðan ég var í mesta sakleysi mínu að vinna...

Gæti endað með 3ja sæta tungusófa sem er 315 á breidd og 226 tungan!..

STOFAN ER 4x4!!!!......

..kemur allt í ljós í fyrramálið.


bíddu var það ekki eitthvað meira?....

..uuuuuuuuuuuu.....JÚ!!!!





ÉG MUN HALDA ÁFRAM AÐ ÞERRA ALKA LANDSINS UM ÓÁKVEÐIN TÍMA ;)







..........FEGNASTADísin ;)


29. janúar 2009 klukkan 23:23
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
19janúar

Óvissa.. af hinu góða eða frá helvíti?

Loksins komið nýtt ár.
.....ekki það að ég hafi eitthvað verið óþreyjufull neitt.

Strengdi ekki áramótaheit, finnst þau hallærisleg og afsaka það að taka sig á, á öðrum tímum ársins.

Velti samt fyrir mér hvort ég verði orðin helmössuð og crasy sterk á árinu eftir ræktina?

Maður veit ekki?..


Átti voða kósý jól og áramót og nýja árið byrjar ágætlega, er enn að skoða hvort ég þurfi að spila fram geitarmyndinni í sambandi við uppsögnina. Tongue out

(hvað finnst ykkur?)

En það ætti að skýrast núna mjöööög fljótlega, er orðin dooooooooooooooooldið þreytt og farið að örla á meiri kvíða...

Besta myndin sem náðist af litlu fjölskyldunni var þessi hérna:


family jólamynd


.....Engill er ekki team player þegar kemur að myndartökum!


.....jæja, verð vonandi hressari í næstu færslu.













EllaDísin.....

19. janúar 2009 klukkan 23:19
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
27desember

Jólaa, jóla jólaaaa!!

Gleðileg jól öll sömul, það er bara allt að gerast!

Takk fyrir mig og mína um jólin!


Ég kom hlaupandi heim úr vinnuni á þorláksmessu, ætlaði að skella í mig einum kaffibolla og fara svo og klára síðustu jólagjafirnar þegar ég sé....

ÞETTA!!!!!


nýja eldavélin....

Splunkuný eldavél á eldhúsgólfinu og ég bara vissi ekki neitt!

Þá hafði Pétur farið græjað þetta allt án þess að ég hefði minnstu hugmynd um það ;)

Ótrúlega hlakkar mig til að fara getað eldað og bakað núna hvað sem er!
Gæti trúað því að heimilisfólkið muni þyngjast eitthvað á næstu vikum hah! ;)

Svo fengum við þennan pizza-ofn frá mömmu og Atla sem mér fannst alveg prýðileg hugmynd alveg þangað til að þessi 14.jólasveinn (ástin mín) kom mér svona skemmtilega á óvart!

Þannig að pizza-ofninum verður væntanlega skipt í eitthvað þarfara í eldhúsið.


Jæja, ég er farin að dást meira að eldavélinni, hún er enn ónotuð því við erum búin að vera í matarboðum frá aðfangadegi!!!

27. desember 2008 klukkan 16:39
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
5 athugasemdir
10desember

Rútína...Skrútína!




Ég er að koma mér í jólagírinn í þessum töluðu orðum, er aðeins byrjuð að skreyta heima og finnst alltaf jafn gaman að geta sett upp gamalt jólaskraut sem hefur "alltaf" verið til ;)

Á samt helling eftir og er voða þakklát fyrir að eiga svona "heilsárs" gardínur í eldhúsinu sem hafa verið uppi frá síðustu jólum.

....þyrfti eiginlega að redda mér meira svona 
                                                            
       "heilsárs-dóti/skrauti".


Restin af jóladótinu er allt innst í "hellinum" undir stiganum og ég þarf svo að taka á því og láta PÉTUR HETJUNA mína ná í það þangað inn.

Ég hálf tryllist við tilhugsunina að teygja mig eitthvað blint inn í "hellinn" og finna svo að það hefur einhver "hellisbúinn" dottið ofan í hálsakotið á mér eða skríður á hendinni..Uuuuuuuuuu...NEI!! 

..get ekki einu sinni hugsað þetta til enda, mig er farið að klæja allsstaðar!

Afhverju er ekki hægt að hafa geymslur meira eins og VENJULEG HERBERGI MEÐ LJÓSI OG ENGUM KÖNGULÓM?

Fá Arkitektar ekki mesta menntun í teikningu af okkur öllum og geta ómögulega krassað einn glugga!, erum að tala um mastersgráðu og útkoman er í 80% tilvika "kjörlendi köngulóanna!".

Skil ekki svona!

Og afhverju eru vettlingar kallaðir vettlingar?

             ....afhverju ekki HANDKLÆÐI? Þeir eru það!
.........................
...................
...............
...........
........
.....
...
.

...okey allt í lagi.

Ég er komin á kvöldvaktar viku, sem er ágætt ég virðist ekki geta komið nokkrum aga á svefninn hjá mér fyrren ég er komin í þrot með hann...Tjah, eða skortinn af honum allavega.

Alltof seint að sofa og sofa frammeftir= Vítahringur dauðans!

Missti þolinmæðina í á mánudagskvöld og hugsaði (þegar það var komin morgun 05.00) og ég þá fyrst að ná að slaka í rúminu, að nú yrðu sko enginn helv. "HANDKLÆÐA-TÖK"!

Á lappir klukkan 08.00 og snúa þessu við!

Flott gekk furðu vel í þessari ákveðni hjá mér, mætti spræk á kvöldvakt, var orðin ógisslega þreytt um 19.00 og hlakka til þess að fara sofa þegar vakti yrði búin og enda svo á 
næturvakt...
 

Týpískt..

Fór heim og lagði mig í klukkutíma fyrir nóttina og ómæ, mín verður hættuleg í umferðinni á eftir ;)

jæja þetta er orðin algjör steypa..







ÓGISSLEGA ÞREYTTUST!!!!....


10. desember 2008 klukkan 07:07
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
5 athugasemdir
29nóvember

Gamla góða...... Ooooh!!!



Ég á lítinn bróðir sem ég var eiginlega búin að gleyma að ég "ætti", þangað til í fyrradag.

Þá loksins náðum við á hvort annað símleiðis eftir örugglega rúmlega 2 mánuði sem við höfðum EKKERT heyrt né séð af hvort öðru.


Mætti halda að okkur kæmi ekkert sérstaklega vel saman?

Nibb ekkert svoleiðis.

..........allavega ekki lengur! Laughing


Ég fór og fékk lánaðan tölvuleik hjá honum því þá var enn netlaust að ég hélt á U-deild.

Fékk pc leikinn: The Curse Of Monckey Island (ógisslega gamall og þarf að keyra hann á windows 95 svo hann virki, haha)


Nema hvað að ég mundi hvers vegna ég HÆTTI að spila tölvuleiki!

(Allavega fyrri ástæðuna af tveim mjög mikilvægum)

Ég installa leikinn sem var að vísu smá bras því hann er svo gamall, en ótrúlegt en satt þá náði ég að klóra mig í gegnum þetta.
Byrja að spila og varð.......


 
6 ára, á núll einni!!!


Tíminn flaug ásamt allri vitrænni hugsun!

Skildi ekki hvernig klukkan gat verið 03:30 og svo bara allt í einu orðin 07:55!

Vaktin bara búin og ég bara ekkert HRESS með það!
Var komin á svo spennandi stað, var komin með vúdú-kellinguna í lið með mér og við vorum á leiðinni að fara finna okkur sjóræningjaskip fyrir mig og áhöfnina.

Þannig að þetta var auðvitað mjög slæmur tími til þess að þurfa bara að hætta svona allt í einu, eins og gefur að skilja!


Allavega, ég reif mig út úr þessu og drattaðist heim og spilaði auðvitað aðeins áfram ;)


Svo spila ég meira núna í nótt frábært eins og í gær, endalaust fjör gekk vel og allt að gerast og svo..


Alveg 
STOPP!...


Aaaalveg stopp í leiknum og veit ekkert hvað ég á að gera næst, finnst ég búin að prufa allt, og þá kemur þessi gamla góða GREMJA sem gerir mig svo pirraða að ég get ekki einbeitt mér og langar helst að kremja músina í höndunum á mér.


Þetta var ástæða númer 2....(músin er samt enn heil..eins og er..)










EllaDísin....


29. nóvember 2008 klukkan 07:50
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
4 athugasemdir
27nóvember

Næturvaktir..........ÚJÉÉÉÉ!!!!!!




Það er loooksins komið net aftur á unglingadeildina.

Talaði við Hjalta á þriðjudagsmorgun og tjáði honum alvarleika þess að næturvaktin (ég þessa viku) kæmi á vakt, tæki við rapporti, mokaði börnunum í bælið og.....?

EKKERT!


Aaaaaalein með hausnum á sjálfri mér í 8 og 1/2 tíma Hjalti minn! 
Og það er ekki félagsskapur sem ég nenni til lengdar.


Auðvitað á ég svo yndislegann yfirmann að hann hló að þessu og sagði svo grafalvarlega

...."auðvitað! við verðum að redda þessu!"


TAKK Wink


Nú hef ég getað sóað tímanum á búkkinu í alla nótt við allskyns "must see" öppum eins og:

"how are you in bed?"  

...Ekki það að ég þurfi könnun til þess að segja mér að ég er
$%&$#% = to die for! ;)



Og svo auðvitað spjallað við Tinnu ástarengil og plana hitting með heimsmethafanum í úthalds-sleik!

Sem mun meðal annars baka, og þá ekki vandræði ;)




Minni svo á nýja könnun!

...aldrei að vita nema maður hlusti á kjósendur og velji sér starfsvettvang eftir úrslitum kosninga!





EllaDísin......



 
27. nóvember 2008 klukkan 07:05
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Ráðgjafanemi
  • Hjúskaparstaða: frátekin
  • Um mig: er svo margt að segja..
  • Annað: Þessi mynd var tekin af honum Sigga Kalla í svona payback feeling, -Siggi minn myndin af þér sem ég tók er að finna í albúminu mínu ;) !!!

Könnun

Árið 2009 verður...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins