uuuuuuuuu...?
Er í merkilega góðu skapi eftir 6. vaktina.
(sem hefur hingað til ekki gerst)
Gott að sjá að maður getur lært og skánað enn eitthvað á gamals aldri ;)
Langar að þakka Tinnu og Höllu alveg frá mínum innstu hjartarótum fyrir að hringja svona um miðjan dag í mig...
Þegar það er NÓTT hjá mér..
En ég er alveg kolómöguleg í að komast á fætur og jésús þá að ætla reyna vera fersk og skemmtileg í hitting þegar þegar þessar vaktir eru....
(voða takmörkuð ég veit
)
Dreif mig með bílinn í skoðun og fékk auðvitað aftur endurskoðun...
Það á víst ekki að heyrast kraftpústhljóð þegar það er ekkert kraftpúst.
(voða smámunasamir)
Tannlæknirinn minn mun geta skellt sér til París í mánuð og gist á Hilton hóteli eftir þessar heimsóknir til hennar.
Veit ekki hvernig ég færi að þessu ef ég væri með einhvern rugl lánapakka hingað og þangað.
Það yrði einhvert aumingja bankaútibú með gölum hægfara og hræddum gjaldkerakellingum "heimsótt"..
Hlakka til vikufrísins sem fer að bresta á, en ég ætla mér auðvitað alltaf heila helv. helling í því.
(geri alltaf helling, ekki kanski allt sem var planað
)
HressastaDísin..........(í augnablikinu allavega)..
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal


