23september

Næturvaktir..........ÚJÉÉÉÉ!!!!!!

Komin á nætur vaktir aftur, finnst svo stutt síðan ég var á næturvöktum.

Jæja það þýðir líka að það sé stutt í vikufrí ;)

Fór á Bill Cote um helgina frá 9-16 og afrekaði líka að mæta á næturvaktir. Hehe ég var orðin eins og 5 ára ofvirkur krakki undir lok á sunnudaginn, iðaði í sætinu og gat ómögulega komið mér vel fyrir. Enda búin að sitja í c.a 14 tíma og alveg komin með nóg.

Þetta var ótrúlega skemmtileg helgi, fannst þetta alveg snilld að fá svona old timer að fræða okkur um ýmislegt varðandi námið, og já vá hvað ég sá hvað ég þarf að fara LESA MIKLU MEIRA!

Líka skemmtilegt að sjá þegar vinnufélagarnir koma svona saman og sitja allir í u að hlusta á fyrirlesarann og ég hélt nú að flestir væru þarna til þess að LÆRA, allavega eitthvað smá.

But no!
 
Páll Breiðfjörð, vinur minn á "ónýta" bílnum Glottandi sat við hliðina á mér og var með eitthvað allt annað í huga.

Ég hafði ekki undan að glósa og guð minn ég skil ekki helminginn af þessu krassi sem ég skoða núna (ekki skrifa of hratt það mun ekki lesast!) og hann hafði ekki undann að ýta í mig og þá sérstaklega höndina sem ég skrifa með...

Það endaði auðvitað í því að ég út krotaði allt saman, missti af glærum (þegar ég var að skamma hann) og svo í einni ýtingunni flaug höndin á mér upp og Bill stoppaði.....

Yes, do you have a quiestion?


.......uuuuuuuuuu...no..

he pushed me...

bara svona til þess að gera þetta en vandræðalegra.


.................Þá er Páll miðaldra..

En hey, ég næ honum á næstu study-helgi eða ráðstefnu, mæti með fullt af póstteygjum og sest á móti honum..

........svona afþví ég er greinilega á svipuðum "stað" og Páll Glottandi.





Góða nótt elskurnarKoss..



NáttDísin......




23. september 2008 klukkan 06:36
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
21september

Komin í lag og "KLUKKUÐ"

Here goes......

Það er ýmislegt af frétta að þessum bæ, eiginlega helling þannig að ég ætla fara hratt yfir nokkur atriði:


Hér koma "hápunktar" sl.vikna...


1. Bílinn minn var skemmdur um daginn (við munum það)
    ónýt afturhurðin eftir að það er bakkað á mig.

2. Hleðslusnúran á ferðatölvunni flækti sér utan um lappirnar á Pétri   
    sem í öllu sínu veldi skutlaði henni með sér hálfa leið inn í stofu af
    eldhúsborðinu.  

3. Hillan inn á baði undir speglinum gaf sig alveg öllum að óvörum    
    og allt sem á henni var, ilmvötn, snyrtidót og annað tilheyrandi flaug
    í gólfið, sturtubotninn og já...Klósettið!

4. Gemsinn minn var í hópi þeirra ólánsamra hluta sem lentu í 
    klósettinu
jakk!!!


...............en auðvitað reddast allt saman á endanum! Glottandi

Ferðatölvan dó, skjárinn eyðilagðist því var kippt í lag á einum degi (gott að vera vel tryggður).

Svo var samið við hilluna inn á baði um að þetta gerðist ekki aftur og hún fest tryggilega aftur..

Gemsinn minn, úff... já honum var "bjargað" af undirritaðri og var það þrekraun ársins 2008 í "aðgerðum" heimafyrir. Hann skolaður,rifinn í sundur og var hátt í níu tíma á ofni að ná sér.

Bílinn fer í viðgerð innan fárra daga og ég hvet alla aðra
sem hafa hugsað sér að keyra á bílinn minn hvort heldur er á jeppa eða hjóli, að vinsamlegast halda sér við vinstri afturhurðina og að fresturinn til þess að klára þetta af, rennur út 29 sept!

Var á leiðinni á Bill Cote í morgun og er þarna niður í bæ, er að keyra og er svo að taka hægri beygju þegar ég heyri bang
rétt í miðri beygju. 

Ég hrekk við og sé mann milli 25-35 ára, á hjóli 
sem hafði komið á svona líka fljúgandi siglingu inn í hliðina á mér.

Ég stoppa og ætla athuga hvort það sé ekki allt í lagi með hann og fer út úr bílnum. Maðurinn var vandræðalegur og náði því að detta ekki af hjólinu en svona framm á það og hvað gerir hann?...

Gaurinn hjólar í burtu!!!!...

Einmitt það.
Jæja það eina sem ég vonaði var að hann hefði hitt á helv. hurðina sem var þegar ónýt, og sem betur fer er ég svo "heppin"
 að það gerðist.

Einmitt þetta reddaðist allt..

Svo aftur að því að fylgja þessu "klukki".

Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina:

Bláa Lónið
Málari (húsaviðhald)
Aðstoðar kokkur (á Sléttbak frystitogara frá Akureyri)
Aðhlynning á hjúkrunnarheimilinu Eir
......ráðgjafi hjá sáá sl 2 ár


Fjórar bíómyndir:

Veronica Guierin
What the bleep do we know
Lord of the ring (allar)
Dumb dumber


Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Grindavík city
Neskaupsstaður
Ólafsvík 
Höfn í Hornafirði
..........svo er gott að búa í kópavogi núna ;)


Fjórir sjónvarpsþættir:

Dexter
House
Desperate houswives
Útsvar


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Portúgal
Houston Texas
Orlando Florida
Amsterdam


Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

Mbl.is
youtube.com
.......get ekki sagt að það sé meira svona daglega.


Fernt matarkyns í uppáhaldi:

Kjötsúpan hennar mömmu
Grjónagrautur og lifrarpylsa
Lambalæri
Og allt sem kemur frá Pétri ;)


Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

AA bókin
12 spor og 12 erfarvenjur
Dýragarðsbörn 
og skólabækur

Fjórir óskastaðir akkúrat núna:

Ástralía
Barcelona
Krísuvík
Rúmið mitt

Fjórir bloggara sem ég klukka:

klukk-klukk-klukk-klukk

.....þú




þá er mín að stefna á Bill Cote eftir þessa frekar þreytulega næturvakt og vona bara að ég fari ekki að hrjóta og slefa á fyrirlestri á eftir ;)




LukkuDísin...... 




  

21. september 2008 klukkan 07:20
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
07september

ný vika, nóg að gera.

Þá er löngu helginni alveg að fara ljúka.

Er búin eftir 3 tíma og svo er bara draumalandið.

Fyndið samt alltaf á mánudegi eftir löngu helgina, hvað mér finnst ég alltaf vera vinna "stutt"..

Á morgun er ný vika og alveg plenty að gera með henni, nóg af vinnu, brúðkaup, tannsi (Þögull sem gröfin), fundir og tiltektar skurk með þessu öllu saman!

Er að hugsa um að gerast djörf og virkilega skipuleggja mig á mánudag með það helsta í vikunni,
og framkvæma það, ekki bara búa til listann.. 

...held að það sé mjög vænlegt til vinnings!

Þá er það ekkert meira sem ég nenni að henda hér inn. Aldrei að vita nema ég verði í stuði annað kvöld Glottandi


Kv: Ella Dís

07. september 2008 klukkan 20:30
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
02september

Hósti,hiti og pirringur.

Já heil og sæl,

en ekki ég...og Inda.

Við erum veikar... bara svona afþví að veðrið er svo yndislegt!

Fannst ég vera orðin óvenju stífluð á sunnudaginn og vakna svo raddlaus í gærmorgun.

Gengur ekki að vera svona í vinnuni, með hita og allt í klessu.

Rugl og vesen, nenni ekki veikindum!


Allavegana, þá erum við Engill búin að húka heima og láta okkur leiðast svona passlega, fengum okkur hafrargraut og lifrarpylsu og allt getur þessi hundur étið!

Ég sver það, ég prófaði að gefa honum nýskorinn rauðlauk, bara svona sjá hvort hann væri algjörlega hömlulaus ofæta og..

Já, þetta gúffast niður líka RAUÐLAUKUR gott fólk!

Ég er nú aðeins hressari í dag en í gær og held að ég rífi mig í vinnu á morgun, á illa við mig að aumingjast svona heima.

Hjálpaði henni Ástu minni að þrífa íbúðina sem hún leigði og var að skila af sér á sunnudagskvöld og náði ekki upp í nefið á mér fyrir dónaskap af hálfu leigusalans.

Strunsaði inn og setti út á allt sem hún gat sett út á. 

Vaskurinn var ekki svona í eldhúsinu..og ekki á baðinu! 
Hvað er þetta!? Svona kemur ekki ef maður þrífur almennilega!

(það var eðlileg kísilmyndun sem EKKERT er hægt að gera í!) 

Við vorum þarna skríðandi og skrúbbandi um allt og helvítis píXXn veður um allt og er með yfirgang og dónaskap við Ástu og mömmu hennar!

Ekki að muna það að þau höfðu ekki einu sinni endurnýjað húsaleigusamninginn í hálft ár!! Svo að ungt par með barn gat ekki einu sinni fengið húsaleigubætur!

Þvílíkt lélegt og finnst mér Ásta mín hafa alveg getað bitið frá sér þarna í gæruna! 

Jæja, nenni ekki meiri blaðri núna, er að hugsa um að þrífa a.m.k eina vél svo ég komist nú í vinnuna á morgun sæmilega til fara Glottandi

p.s það er leiðinda flensa í loftinu, vonandi sleppið þið Glottandi






fröken Hóst kveður....

 

02. september 2008 klukkan 16:05
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
8 athugasemdir
31ágúst

Vinna,vinna,vinna...

Sunnudagur í dag, klukkan er 11.30 og ég ekki undir hlýrri sæng að kúra hjá Pétri..

Hmmm...

Er á aukavakt frá 9.00-16.00 á unglingadeildinni með nema í eftirdragi..

Var ekki að nenna á fætur í morgun. Klukkan hringdi og hringdi og hringdi meira þar til ég snooze-aði og ætlaði að kúra bara í 10 mínútur í viðbót.

Var aaaaalveg að dotta aftur þegar ég hrekk upp við eitthvað sem líktist ísköldum blautum putta í bakið á mér, djöfull hrökk ég við..

Nei,nei, þá var þetta bara hundurinn sem hafði gert sér lítið fyrir og stungið hausnum undir sængina hjá mér, rekið trýnið í bakið á mér og byrjaði að sleikja mig!

"GÓÐAN DAGINN MAMMA Hlæjandi"

stóð framan í andlitinu á honum þegar ég hentist við til þess að sjá hvað væri eiginlega að skríða eftir bakinu á mér.
Og auðvitað skottið alveg á fleygi ferð eins og þyrluspaðar þegar hann sér að ég er vöknuð, ægilega kátur og glaður.

Það er samt ekki annað hægt en að vakna kát þega maður fær svona eintóma gleði og hamingju strax í morgunsárið.

..en er samt að spá í að hækka rúmið um svona allavega METER eða svo. Vakna líka reglulega við það að vera komin í andlitsbað í boði Engils, rosalegt hvað þessi tunga nær Ullandi.

Fyndið hvað mér finnst við alltaf hafa átt hann, erum ekki búin að hafa hann nema síðan 12.apríl og hann er svo löngu orðin meðlimur í fjölskyldunni þessi pjakkur.

Sunnudagurinn í dag fer semsagt í vinnu og svo minnist ég þess eitthvað "óljóst" að hafa ætlað að hjálpa einhverjum með eitthvað í dag líka...

..getur það verið? Glottandi





VinnuDís: over and out.....



31. ágúst 2008 klukkan 11:57
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
24ágúst

Sprenging!

Grill í sveitinni, Fundur í Krísuvík, vinna, hundur í pössun og manísk þrif hafa haldið mér frá því að hafa ekki einu sinni kíkt á veðrið á mbl síðustu daga á netinu..

..og kanski smá leti líka.

Ég loksins gafst upp fyrir letinni gagnvart heimilisþrifum í kvöld.

Það kom ekki annað til greina, ég var farin að upplifa mig eins og í gömlum vestra þegar ég labbaði um íbúðina..

Gekk frá eldhúsinu inn í stofu og það sveimuðu með mér og á eftir mér þvílíku ló/hundahárs lubbarnir eins og uppþornuðu runnarnir í vestrunum!!!

Er með svartan sjónvarpsskenk sem var GRÁR  af ryki, sem hefði ekki truflað mig mikið nema hvað það var puttafar á honum sem sýndi gestum og gangandi sinn UPPRUNALEGA LIT!!!...

Þetta var orðið too much.

Svo prufaði Pétur að skilja hundinn eftir heima á fimmtudaginn, lokaði inn í stofu,herbergi og bað.
Þannig að það var ekki nema holið og eldhús sem hægt var að pranga um..

Ég kem heim þann dag klukkan að verða 18.00 og Engill gjörsamlega sleppir sér af hamingju, vælir svona glaður og í kvörtunnartón í bland.(voða sætt)


Þá takið eftir, hafði hann verið heima frá rúmlega 17.00.

Svo trítla ég inn í eldhús og SHIT!!!

Sprenging!!!!

Hvað í ósköpunum gekk eiginlega á?

Eldhúsgardínan hafði verið rifin niður og lá þvert yfir eldhúsborðinu.

Allt punt, bollar, kerti og blóm voru ýmist dreifð á eldhúsborðinu, á gólfinu eða þvers og kruss um gluggann..

Svo var allt á FLOTI líka.

Þá hafði á einhvern óútskýranlegan hátt heil kanna af vatni endað á hvolfi á eldhúsborðinu og blómavasi skutlast úr glugganum og undir borð fullur af vatni..

ALLT Á FLOTI...

Ég bara stóð og starði í mikilli undrun í dyrunum þegar ég sé....







Hundahár og loppuför!!!

í gluggakistunni!!!! 

Ég þurfti sko ekkert C.S.I lið til þess að fatta hvað hafði gengið á.Öskrandi

Litla dýrið hefur svo sannarlega ætlað að troða sér út um gluggan og lagt þetta líka helvíti mikið á sig til þess..

HANN ÞURFTI AÐ KLIFRA UPP Á STÓL TIL ÞESS AÐ KOMAST Í GLUGGANN!!!!

HALLÓ!

.......ótrúlegt alveg hreint.

Og frændi hans Péturs Á LEIÐINNI Í MAT!!!



... er tæpur klukkutími fyrir hund einan heima VANRÆKSLA? 

..hann hefur augljóslega fengið móðusýkiskast! 


Klukkutími? 
...maður spyr sig? taka sjénsinn aftur???


p.s Inda er á næturvöktum á U-deild! Auglýsi hér með eftir óreglupúkum til þess að spjalla við hana á nótunni.

Takk fyrir spjallið Inda Glottandi



ÞrifDísin...




24. ágúst 2008 klukkan 04:13
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
6 athugasemdir
17ágúst

Sunnudagur...

Í dag er sunnudagur..

Allt voða sofandi eitthvað hérna..

Hundarnir báðir, einmitt 2 stykki, er að passa einn líka í viku fyrir Haddý frænku og hefur tíkin aldeilis látið hafa fyrir sér..

Nennigi neinu, en nenni ekki að gera ekkert heldur...

Farin í heimsókn!!!!......

              ......(kanski til þín Ullandi)




SunnudagsDísin.....
17. ágúst 2008 klukkan 16:09
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
4 athugasemdir
11ágúst

Hætt í pirringi núna...

Já einmitt, ég er komin aftur.

Er þrívegis búin að vera í zone-i og pikka inn þessar líka fínu færslur þegar ég lendi í því að í ýta á VISTA takkan og hvað?..

"this page has CRASHED!! og eitthvað bla,bla bla, rugl og kjafræði.

Semsagt búið að vera bölvað óþarfa vesen á síðunni minni og reyndar öðrum líka.
En þar sem ég verð stundum... fljótt pirruð þá bara skellti ég tölvunni aftur og ekki sögunni meir.. þá daga.


Allavega þá er ég nýkomin úr vikufríi, sem er alveg yndislegt og bráðnauðsynlegt að fá svona á nokkurra vikna fresti.
Þau geta neflilega nýst í svo margt sem maður nennir ómögulega eyða helgunum í, þá er ég að tala um að t.d bara fara með NÚLL aumingjaskap og MEÐVIRKNI í það að hreinsa út úr fataskápnum..

Aaaaa... Bara léttir að vita til þess að það sé búið, og ég tók meira að segja meira frá en ástin mín í þetta!!!

Svo er náttúruleg enn annar plúsinn í þessum vöktum sem ég man þegar fríin og kvöldvaktirnar eru, og það er að komast á hádegisfundi.
En það er bara með því besta sem ég veit, finnst fátt betra en að geta tekið með mér fund inn í daginn, fylgir þá deginum svo góður andi líka ;)

Við tókum okkur líka til hjúin og pöntuðum ferð til Hollands núna eftir nokkrar vikur og O.M.G hvað mig hlakkar til að fara, verðum í viku í þetta sinn en í fyrra vorum við bara í 3 daga, það var bara ekki alveg nóg.

Get nú ekki séð að það verði mikil verslunnarferð miðað við gengið núna, en það verður þá bara enn betur valið ef það verður eitthvað keypt..

Jæja adios í bili, komin í vinnu rútínuna aftur og finn hvernig fundarbakterían er að ná tökum á mér, maður skaðast nú aldrei af því ;)...

Ella ekkert svo pirraða..

11. ágúst 2008 klukkan 21:46
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
5 athugasemdir
02ágúst

Lífið er yndislegt!!!

Jahá, það er bara frábært að vera tilHlæjandi og ekki skemmir það að vera á leiðinni í vikufrí, eftir þessa vinnutörn..

Hef ekki hugmynd um það hvort við hjúin bröllum eitthvað um þessa helgi, og er alveg pollróleg gagnvart því.

Ég kem bara heim á eftir og hendi mér í háttinn til hádegis og svo á fætur aftur, snúa  sólarhringnum strax. Þá kemur í ljós hvort við kíkjum eitthvað þessa helgina.

Okkur var boðið til pabba og Kristínar á miðvikudaginn í  alveg skuggalegt grill, ekkert smá flott alltaf hjá þeim, og ég held ég verði södd fram eftir helgi.
Það var ekkert smá næs, hitti krílin hans Óskars, Krissi og Kolla líka í mat og rosa fjör hjá Tristan se er ársgamall, hann er alveg ástfanginn af Engli, vill bara elta hann og sulla með honum í vatnsskálinni ;)

Eins og ég segi alveg frábært, samt aðeins skrítið að vakna og hlaupa strax í steikur! Ekki vön því, haha..

Svo náði ég þessari mynd af pabba og Tristani..

tristan og afi



............finnst þetta svo falleg mynd.
og ekki laust við að ég hlakki til að gera hann að afa þegar þar að kemur..Glottandi



p.s eins og þið eflaust tókuð eftir þá er nýja slóðin:

elladisin.bloggar.is

góða helgi elskurnar ;)



Ella Dísin.........................
02. ágúst 2008 klukkan 06:36
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
01ágúst

Ég er svo lánsöm...

Ég er svo heppin að eiga svona yndislegann mann ;)

Ég er alveg gjörsamlega óvirk á þessum næturvöktum. Það sem ég geri allan sólarhringinn þegar ég er á þeim er:

1. Mæti í vinnu og hendi börnunum í háttinn..

2 .Fer á netið (eins og þið vitið)

3. Kvarta á blogginu mínu út í eitt. (getting really old)

4. Fer heim.

5. Gef hvolpnum í svanginn og knúsa hann vel.

6. Fer að sofa í fanginu á Pétri...

7. ......

Það er ekkert númer 7, that´s it!!!!
 


Svo vakna ég við það að ástin mín eina er annað hvort að græja kvöldmat eða á leiðinni í það..

Það lamast allt, þvottur,tiltekt,félagslíf... Nada!!!
Ég myndi klárlega borða kornflex í öll mál þessar næturvakta vikur ef hans nyti ekki við..

rómó


..........




Takk ástin mín, ég elska þigKoss......



01. ágúst 2008 klukkan 09:21
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
5 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Ráðgjafanemi
  • Hjúskaparstaða: frátekin
  • Um mig: er svo margt að segja..
  • Annað: Þessi mynd var tekin af honum Sigga Kalla í svona payback feeling, -Siggi minn myndin af þér sem ég tók er að finna í albúminu mínu ;) !!!

Könnun

Árið 2009 verður...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins