17febrúar

Næturvaktirnar ógurlegu....

 (Útidyra hurðin opnast og..)
Góðann daginn!, halló á ekki að fara á fætur!? Veistu hvað klukkan er!? (og ljósin kveikt inn í herbergi) Hún er fimm, eða næstum því. (klukkan var fjögur). - Ég styn upp þreytt en ákveðið- Já! einmitt ég er að fara á næturvakt í kvöld- MANSTU???...
Karldýrið svarar: Já..ok alveg rétt.. (mundi það ekki)

Og fyrst það var búið að lýsa yfir degi í mínu lífi sem ég átti semsagt að fara á fætur og taka þátt í, þá reif ég mig á fætur og settist hjá karldýrinu inni í stofu. Pétur (karldýrið) spurði hvort ég ætlaði í heimsókn til mömmu, ég sagðist ekki vera viss. Hann sagðist finna það á sér að þau vildu endilega bjóða okkur í mat og þá sérstaklega honum.
Hringdi í Atla pa og sagði honum að hann væri að fara bjóða okkur í mat. Atli samþykkti það og var einmitt að fara grilla. (ótrúlegt hvað það var hentugt, við nenntum svo ekki að elda)
Fengum ótrúlega fínan mat aftur í kvöld (fórum á Argentínu í gærkvöldi og vá hvað það klikkar ekki!) og hittum mágkonu mína sem tókst að láta Pétur plata sig til þess að reyna borða kúfaða matskeið af kanil og ef það tækist fengi hún 20þúsund kall...
Hafrún mín þú færð allavega 20þúsund prik fyrir að reyna. (tókst ekki, en mikið hlegið).
................
er svo komin hingað í þennan guðsvolaða stól fyrir framan tölvuna á unglingadeildinni alveg svoooooooooooooooona syfjuð. Sem er mjög mikið því það er bara hægt að vera svooona mikið syfjaður..
Klukkan er tuttugu mín í fimm...
Klukkan er nítján mín í  fimm..
....farin að gera eitthvað annað, líður of hægt hérna...

17. febrúar 2008 klukkan 04:39
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
13febrúar

Jæja, sé fyrir endan á þessu...

Fór til læknis í gær og fæ að fara í vinnuna á föstudaginn og heiðra samstarfsfólk mitt með nærveru minni.
(þá er svartidauðinn liðinn hjá Halla)
 
Þá get ég líka komið með þér í pool Ásta (sem smitast ekki af almúgapestum!)

Þá get ég líka heimsótt þig Elva, sem ætlar að vera svo dugleg í ræktinni með mér. (manstu?)

Já, hljómar vel, skelli mér örugglega bara líka aðeins í búðir og athuga hvort mér eða heimilinu bráðvanti ekki eitthvað.

Einhverjar hugmyndir?

13. febrúar 2008 klukkan 17:44
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
6 athugasemdir
11febrúar

náði ykkur, múhú haha!!!

Já ég get sko sagt ykkur það að þótt maður liggi í veikindum og ekki tækur til neins þá hefur mér samt tekist að smita móður mína (ekki að ég sé neitt sérlega stolt af því) en Tinnu vinnufélaga náði ég hinsvegar í gær, sem verður að teljast nokkuð merkilegt því hún heldur því fram að ég hafi smitað hana í gegnum msnið GERI AÐRIR BETUR.

Tinna mín þú bara passar þig á því að vera ekki að dreifa þessari flensu út um allt í gegnum msnið vinkona, það er alls ekki víst að það taki þessu allir með jafnmiklu jafnaðargeði og þú ;)

En allavegana þá þykir mér það mjög miður að viðurkenna það að ég er ekki alveg eins klár í þessu tölvudóti og ég hélt, get t.d ómögulega sett inn prófílmynd, bara gerist ekki!!! orðin virkilega pirruð, er líka ekki klárust á myspace, ennþá meira pirruð á því. Ekki í góðu jafnvægi svona slöpp en er líka ánægð með það að nenna ekki að vera í vondu skapi yfir smámunum. Miklu skemmtilegra að halda áfram að athuga hvort ég sé virkilega svo máttug að geta dreift flensu um msnið, jæja, hver er næst í röðinni?.. hmm-..  Ásta Margrét, brace your self!!! 

11. febrúar 2008 klukkan 16:05
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
10febrúar

Enn heilsulaus...

Vaknaði í dag með meiri hita, meira slöpp og ótrúlega þreytt eftir að hafa sofið í a.m.k 13 tíma, greinilega ekki nóg af svefni.

Velti því fyrir mér hvort ég þurfi ekki bara að leggjast í dvala svona rétt yfir vetrartímann eins og mörg önnur dýr. Svæfi þá allavega þessar flensur af mér sem ganga á veturna.

En ég er þá alveg klár á því að nú er veikinda kvótinn búinn og ekkert eftir nema hraustleikinn uppmálaður það sem eftir lifir árs.Glottandi

Ætla að ferðast svo miklu meira en í fyrra, verð ekki föst í afdölum í sjö mánuði því vinnan sendi mig í sveit síðasta sumar og mun því taka all hressilega á því þetta sumar og njóta þess í botn, verða brún og sæt allt sem almennilegt sumar hefur uppá að bjóða. 

10. febrúar 2008 klukkan 23:36
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
1 athugasemd
09febrúar

Nenni ekki veikindum!!!

Þetta er alveg málið, liggja ekki heima hjá mér heldur mömmu frekar slöpp með hita og láta sér detta í hug á svona æðislegum degi að búa til blogg síðu. Jæja ég hef nú fengið verri hugmyndir en þetta. 

Planið fyrir daginn í dag var nokkuð þétt, leika við drenginn, fara í allavega 2 tíma í pool með ástkærri vinkonu minni, þvo þvott, kíkja í afmæli til Tinnu og láta afganginn ráðast... En nei dagurinn í dag byrjar á 38,5 stiga hita og þess vegna:


Fórum við Mikael með ömmu í vinnuna í morgun og erum búin að vera hafa það bara virkilega rólegt í dag, drengurinn fékk ekki sínu fram í morgun að frænka myndi fara með honum í Hallgrímskirkjuturn í morgun, enda á grafarbakkanum og ekkert á því að koma sér sjálf í kirkjuna (það er verk familíunnar) og urðum við sátt á það að fara heim í hlýjuna og skiptast á afrekssögum sem hafa verið skráðar síðan við hittumst síðast, fá okkur heitt kakó og ristað brauð með osti og finna upp á því að Mikael stóri 7 ára pjakkurinn feli sig bakvið hurðina þegar afi kemur heim og stökkvi svo fagnandi í fangið á honum. Alltaf gott að vera óviti, hefur ekki eins alvarlegar afleiðingar eins og ef 24 ára gömul frænka hans tæki upp á því..

09. febrúar 2008 klukkan 16:11
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
1 athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Ráðgjafanemi
  • Hjúskaparstaða: frátekin
  • Um mig: er svo margt að segja..
  • Annað: Þessi mynd var tekin af honum Sigga Kalla í svona payback feeling, -Siggi minn myndin af þér sem ég tók er að finna í albúminu mínu ;) !!!

Könnun

Árið 2009 verður...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins