27desember

Jólaa, jóla jólaaaa!!

Gleðileg jól öll sömul, það er bara allt að gerast!

Takk fyrir mig og mína um jólin!


Ég kom hlaupandi heim úr vinnuni á þorláksmessu, ætlaði að skella í mig einum kaffibolla og fara svo og klára síðustu jólagjafirnar þegar ég sé....

ÞETTA!!!!!


nýja eldavélin....

Splunkuný eldavél á eldhúsgólfinu og ég bara vissi ekki neitt!

Þá hafði Pétur farið græjað þetta allt án þess að ég hefði minnstu hugmynd um það ;)

Ótrúlega hlakkar mig til að fara getað eldað og bakað núna hvað sem er!
Gæti trúað því að heimilisfólkið muni þyngjast eitthvað á næstu vikum hah! ;)

Svo fengum við þennan pizza-ofn frá mömmu og Atla sem mér fannst alveg prýðileg hugmynd alveg þangað til að þessi 14.jólasveinn (ástin mín) kom mér svona skemmtilega á óvart!

Þannig að pizza-ofninum verður væntanlega skipt í eitthvað þarfara í eldhúsið.


Jæja, ég er farin að dást meira að eldavélinni, hún er enn ónotuð því við erum búin að vera í matarboðum frá aðfangadegi!!!

27. desember 2008 klukkan 16:39
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
5 athugasemdir
10desember

Rútína...Skrútína!




Ég er að koma mér í jólagírinn í þessum töluðu orðum, er aðeins byrjuð að skreyta heima og finnst alltaf jafn gaman að geta sett upp gamalt jólaskraut sem hefur "alltaf" verið til ;)

Á samt helling eftir og er voða þakklát fyrir að eiga svona "heilsárs" gardínur í eldhúsinu sem hafa verið uppi frá síðustu jólum.

....þyrfti eiginlega að redda mér meira svona 
                                                            
       "heilsárs-dóti/skrauti".


Restin af jóladótinu er allt innst í "hellinum" undir stiganum og ég þarf svo að taka á því og láta PÉTUR HETJUNA mína ná í það þangað inn.

Ég hálf tryllist við tilhugsunina að teygja mig eitthvað blint inn í "hellinn" og finna svo að það hefur einhver "hellisbúinn" dottið ofan í hálsakotið á mér eða skríður á hendinni..Uuuuuuuuuu...NEI!! 

..get ekki einu sinni hugsað þetta til enda, mig er farið að klæja allsstaðar!

Afhverju er ekki hægt að hafa geymslur meira eins og VENJULEG HERBERGI MEÐ LJÓSI OG ENGUM KÖNGULÓM?

Fá Arkitektar ekki mesta menntun í teikningu af okkur öllum og geta ómögulega krassað einn glugga!, erum að tala um mastersgráðu og útkoman er í 80% tilvika "kjörlendi köngulóanna!".

Skil ekki svona!

Og afhverju eru vettlingar kallaðir vettlingar?

             ....afhverju ekki HANDKLÆÐI? Þeir eru það!
.........................
...................
...............
...........
........
.....
...
.

...okey allt í lagi.

Ég er komin á kvöldvaktar viku, sem er ágætt ég virðist ekki geta komið nokkrum aga á svefninn hjá mér fyrren ég er komin í þrot með hann...Tjah, eða skortinn af honum allavega.

Alltof seint að sofa og sofa frammeftir= Vítahringur dauðans!

Missti þolinmæðina í á mánudagskvöld og hugsaði (þegar það var komin morgun 05.00) og ég þá fyrst að ná að slaka í rúminu, að nú yrðu sko enginn helv. "HANDKLÆÐA-TÖK"!

Á lappir klukkan 08.00 og snúa þessu við!

Flott gekk furðu vel í þessari ákveðni hjá mér, mætti spræk á kvöldvakt, var orðin ógisslega þreytt um 19.00 og hlakka til þess að fara sofa þegar vakti yrði búin og enda svo á 
næturvakt...
 

Týpískt..

Fór heim og lagði mig í klukkutíma fyrir nóttina og ómæ, mín verður hættuleg í umferðinni á eftir ;)

jæja þetta er orðin algjör steypa..







ÓGISSLEGA ÞREYTTUST!!!!....


10. desember 2008 klukkan 07:07
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
5 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Ráðgjafanemi
  • Hjúskaparstaða: frátekin
  • Um mig: er svo margt að segja..
  • Annað: Þessi mynd var tekin af honum Sigga Kalla í svona payback feeling, -Siggi minn myndin af þér sem ég tók er að finna í albúminu mínu ;) !!!

Könnun

Árið 2009 verður...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins