06febrúar

uuuuuuuuu...?

Er í merkilega góðu skapi eftir 6. vaktina.
(sem hefur hingað til ekki gerst)

Gott að sjá að maður getur lært og skánað enn eitthvað á gamals aldri ;)

Langar að þakka Tinnu og Höllu alveg frá mínum innstu hjartarótum fyrir að hringja svona um miðjan dag í mig...

Þegar það er NÓTT hjá mér..

En ég er alveg kolómöguleg í að komast á fætur og jésús þá að ætla reyna vera fersk og skemmtileg í hitting þegar þegar þessar vaktir eru....
(voða takmörkuð ég veitTongue out)


Dreif mig með bílinn í skoðun og fékk auðvitað aftur endurskoðun...
Það á víst ekki að heyrast kraftpústhljóð þegar það er ekkert kraftpúst.
(voða smámunasamir)

Tannlæknirinn minn mun geta skellt sér til París í mánuð og gist á Hilton hóteli eftir þessar heimsóknir til hennar.

Veit ekki hvernig ég færi að þessu ef ég væri með einhvern rugl lánapakka hingað og þangað.

Það yrði einhvert aumingja bankaútibú með gölum hægfara og hræddum gjaldkerakellingum "heimsótt"..


Hlakka til vikufrísins sem fer að bresta á, en ég ætla mér auðvitað alltaf heila helv. helling í því.
(geri alltaf helling, ekki kanski allt sem var planaðSmile)








HressastaDísin..........(í augnablikinu allavega)..

06. febrúar 2009 klukkan 08:48
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
04febrúar

Nennigi gera nema sem minnst núna..

Sit hérna á vaktinni hálf úfin, grámygluleg og í 66° norður úlpunni sem Pétur gaf mér í afmælisgjöf..

(já það er kalt hjá mér)..

Virðist þó ennþá ná að drepa tíman þokkalega yfir nóttina og merkilegt nokk koma einhverju í verk sem er hálf ómögulegt þegar ég er á 9-17 vöktum..

Skelli mér með bílinn í skoðun á eftir eingöngu til þess að fá ENDURSKOÐUN á hann aftur!

Við Atli græjuðum diskana um daginn og þegar við vorum búin að setja Opel-undrið á lyftuna þá sáum við að pústið er alveg á síðasta séns.
Það hafði meira að segja tærst af stubburinn á púströrinu sem kemur aðeins útundan bílnum og við gátum ekki annað en hlegið Tongue out



Fór í klippingu og strípur og er ógisslega flott á mér hárið! ;)


Var með það á hreinu að fara í A.S.I fræðsluna á þrið og mið kl 15.30-17.30 en jésús minn, ég rumskaði ekki einu sinni þegar klukkan hringdi í gær!
Ætla samt að prófa aftur í dag, er ekki sátt við að missa af þessu!
(endilega ef þið nennið að prófa hringja í mig í dag 4/2 kl 14.00 ef þið munið eftir þessu með mér)

Svo er ég loksins orðin dugleg í ræktinni nema hvað ég hef ekkert farið eftir að ég fór á næturvaktirnar og býst ekki við því að fara fyrren í fyrsta lagi beint eftir síðustu vaktina.

Þannig að ef þig sjáið undirhöku næst þegar við hittumst, þá vitið þið hvers vegna hún kom!Wink 


Ég sem sagt hér með, eftir ég veit ekki hvað margar næturvakta hrinur og jafn margar tilraunir til þess að gera eitthvað aktíft með þeim viðurkenni mig GERSIGRAÐA...

Þær eru og verða einfaldlega Vinna-borða-sofa...


Ef Pétur væri ekki að græja kvöldmatinn, þá myndi ég sennilega lifa á kornflexi á þessum næturvöktum Embarassed... 


(ættuð bara sjá þvottahúsið! Segi bara eins og Eydna : bara reinlega missi tödjin þar!)

...hún sem sagt :Hreinlega missir tökin þar ;)










EllaDísin.......






 

04. febrúar 2009 klukkan 07:50
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
3 athugasemdir
02febrúar

Þvílíkur dýrðar mánudagur ;)

Þær fljóta ágætlega í gegn núna þessar vaktir!

Ekki slæmt það! ;)


Er farin að skipuleggja helst óslitin lærdóm til apríl/maí..

(bjartsýn ha?)

Neh, held þess þurfi til þess að fá ásættanlega út úr þessu næsta prófi.

Er nýfarin að geta horft aftur á þessar bókadruslur aftur, en vá hvað þær fóru í frost við þessa vinnu óvissu sl. 3 mánuði.
Gat ekki einbeitt mér að neinu nema bara deginum í dag PUNKTUR!

Þannig ég er öll að lenda aftur sem betur fer ;)

Er enn þá með gamla góða sófann, en sófinn sem elskuleg móðir mín ætlaði mér fór annað, sem betur fer.

Við erum ekki alveg með sama smekk á húsgögnum, eiginlega bara alls ekki!Tongue out

Fékk dýraeftirlitið í heimsókn til mín á fimmtudaginn..
Ég bara var ekki heima til að taka á móti honum og Pétur ekki heldur, þannig að þeir fá símtal á eftir frá mér.

En elskulegur nágranni minn hringdi og tilkynnti eitthvað? Veit ekki hvað það gæti verið og einmitt þá verður forvitnilegt að heyra hvað kemur út úr þessu símtali á eftir.

Get ekki sagt að ég sé sátt við nágrannann! Líður hálfpartinn eins og dýraníðingi og einhverju vesenispakki!

En þessi nágranni hefur alveg gengið fram af mér núna og hélt ég að það væri ekki hægt að toppa það að hringja í lögregluna vegna þess að hún er ósátt við það að við notum vekjaraklukku!
(veit ekki með ykkur en ég myndi ekki halda vinnuni lengi ef ég hætti að nota vekjaraklukku!)

Jább, sumir eru alveg klárlega ekki hæfir í þessu samfélagi..

Ætla hendast í klippingu núna strax eftir vaktina og sjá hvort það komi eitthvað krassandi út úr því!Wink









EllaDísin............
02. febrúar 2009 klukkan 07:15
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
2 athugasemdir
01febrúar

Næturvaktirnar góðu ;)

Þá er maður mættur aftur á kreik hérna á nóttinni.

Komin tímabundið aftur í hóp óreglupésa, næturvinnu fólks og annara dýra sem hafa sig eingöngu fram í skjóli myrkursCool...


Er búin að hugsa mikið þessa viku hversvegna sumir eru svona mikið hægari en aðrir?

Hef heyrt einstaklinga biðja um útskýringu á einhverju sem var verið að enda við að útskýra fyrir þeim einni sekúndu áður. NEMA þeir fleygja fram: Hvernig gerir maður það? á sekúndu tvö!...

Oooooooooooohhh!!!

 Finnst þetta bæði svo þreytandi og VANDRÆÐALEGT fyrir þessa aumingja einstaklinga!!!!

En já það eru ekki allir jafn fljótir..

...........hvað þá STÓRFLJÓTIRLaughingTongue out


1. nóttin búin af sjö og hún leið skratti hratt (ekki slæmt það)
ætla láta þessar næstu 6 þjóta framhjá líka ;)















NæturDrottningin......
01. febrúar 2009 klukkan 07:52
Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
1 athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Elín Þórdís Gísladóttir Meldal
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Ráðgjafanemi
  • Hjúskaparstaða: frátekin
  • Um mig: er svo margt að segja..
  • Annað: Þessi mynd var tekin af honum Sigga Kalla í svona payback feeling, -Siggi minn myndin af þér sem ég tók er að finna í albúminu mínu ;) !!!

Könnun

Árið 2009 verður...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins